Innlent

Tveir fluttir á slysadeild eftir umferðarslys í Kópavogi

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Bílarnir eru báðir mikið skemmdir og voru ökumenn beggja bíla fluttir á slysadeild til aðhlynningar með minniháttar áverka.
Bílarnir eru báðir mikið skemmdir og voru ökumenn beggja bíla fluttir á slysadeild til aðhlynningar með minniháttar áverka. Vísir/Eyþór
Lögreglunni barst tilkynning um tveggja bíla umferðarslys við Arnarnesveg og Salaveg klukkan korter í átta í kvöld. Bílarnir eru báðir mikið skemmdir og voru ökumenn beggja bíla fluttir á slysadeild til aðhlynningar með minniháttar áverka.

Þá var bíl ekið á vegg við Bakkasel um klukkan 18:15. Ökumaðurinn kom sér undan og skildi bílinn eftir á staðnum.Málið er í rannsókn hjá lögreglu.

Rétt fyrir klukkan 21 var ökumaður stöðvaður í akstri við Rofabæ. Hann reyndist vera undir áhrifum fíkniefna og var hann sviptur ökuréttindum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×