Íslenski boltinn

Blikar léku sér að Víkingi

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Úr leik liðanna í sumar
Úr leik liðanna í sumar Vísir/Anton
Undirbúningstímabilið í íslenska fótboltanum er formlega hafið, en Bose mótið fór af stað í morgun.

Breiðablik mætti Víkingi R. í Fífunni og léku Blikar sér að Víkingum.

Lokatölur í leiknum urðu 8-1 fyrir Blika. Willum Þór Willumsson skoraði þrennu fyrir Breiðablik og Gísli Eyjólfsson gerði tvö. Þá skoruðu þeir Aron Bjarnason, Páll Olgeir Þorsteinsson og Kolbeinn Þórðarson sitt markið hver.

Filip Djordjevic skoraði mark Víkinga, en hann er á reynslu hjá félaginu.

Mikið var um unga leikmenn í dag og voru Víkingar með nokkra leikmenn á reynslu í leiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×