Innlent

Davíð segist ekki hafa vitað af upptökunni: „Hefði þá verið fágaðri í talmáli“

Þórdís Valsdóttir skrifar
Afrit af símtalinu margrædda var birt í dag í Morgunblaðinu, sem Davíð stýrir.
Afrit af símtalinu margrædda var birt í dag í Morgunblaðinu, sem Davíð stýrir. Vísir/Ernir
„Það er merkilegt á tímum, þegar svo mörgu ómerkilegu er lekið að þetta stutta samtal hafi ekki birst,“ segir Davíð Oddsson í Reykjavíkurbréfi Morgunblaðsins um samtal sitt og Geirs H. Haarde. Hingað til hefur Geir H. Haarde ekki samþykkt birtingu samtalsins en fjölmiðlar hafa lengi kallað eftir opinberun þess.

Davíð, sem talar um sjálfan sig í þriðju persónu, segir að fjölmargir hafi haft samtalið undir höndum, annað hvort endurritaða hljóðupptöku eða uppskrift. Samtalið, sem átti sér stað  sama dag og neyðarlögin voru sett, var birt í heild sinni í Morgunblaðinu í dag. Davíð Oddsson er ritstjóri Morgunblaðsins.

Símtalið fjallaði um lánveitingar til Kaupþings banka. Kaupþing fékk 500 milljóna evru þrautarvaralán frá Seðlabankanum til að standast þá ólgu sem umlék íslenskt bankakerfi á þessum tíma. Lánið dugði þó ekki til og bankinn féll nokkrum dögum seinna. Í samtalinu segir Davíð að hann búist ekki við því að fá þessa peninga til baka. „Þeir segja að þeir umi borga okkur eftir fjóra fimm daga en ég held að það séu ósannindi eða við skulum segja óskhyggja,“ segir Davíð í símtalinu.

Hann segir einnig að fjárlaganefnd undir forystu Björns Vals Gíslasonar hafi rætt það heilan vetur hvort það væri ekki brýnasta mál þjóðarinnar að fá samtalið birt. Davíð var formaður bankastjórnar Seðlabankans á þessum tíma og undrast á því að hafa aldrei verið boðaður í viðtal vegna samtalsins.

„Fyrrverandi formaður bankastjórnar SÍ var aldrei boðaður til þessarar þrotlausu umræðu. Hann var þó annar af aðeins tveimur sem örugglega vissi eitthvað um þetta samtal. Hvers vegna var hann aldrei boðaður? Var það vegna þess að hann hefði aðeins þurft að stoppa í fimm mínútur til að segja að sjálfsagt væri að birta þetta samtal.“

Segist ekki hafa verið meðvitaður um upptökuna

Davíð segir að tími hafi verið kominn til að birta samtal hans og Geirs. Þó hefur því verið hafnað hingað til að birta samtalið og í síðasta mánuði stefndi Kjarninn miðlar, móðurfélag Kjarnans, Seðlabanka Íslands og fór fram á að ógilt yrði ákvörðun bankans að hafna kröfu Kjarnans um aðgag að símtalinu.

„Þá kemur væntanlega í ljós að samtalið er ekki sú sprengja sem menn voru búnir að ímynda sér. Augljóst er að formaður bankastjórnarinnar hefur ekki verið meðvitaður um að samtalið var tekið upp,“ segir Davíð og bætir við að þá hefði hann verið faglegri í talmáli sínu og vísar þá líklega til þess að á einum stað í samtalinu umrædda segir Davíð „við erum að fara alveg niður að rassgati“.

Þrátt fyrir að Davíð segist ekki hafa verið meðvitaður um það að símtalið væri tekið upp kom fram í vitnisburði starfsmanns Seðlabankans að Davíð hafi sérstaklega skipt um síma til að geta hljóðritað samtalið. Umræddur starfsmaður varð vitni að símtalinu.


Tengdar fréttir

Skipti um síma til að hljóðrita samtalið

Davíð Oddsson þáverandi Seðlabankastjóri skipti sérstaklega um síma til að hann gæti hljóðritað samtal sem hann átti við Geir H Haarde þáverandi forsætisráðherra um umdeilt neyðarlán til Kaupþings. Davíð taldi ólíklegt að ríkið myndi fá lánið greitt til baka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×