Lífið

Serena Williams glæsileg í brúðarkjólnum 11 vikum eftir barnsburð

Anton Egilsson skrifar
Þau Serena Williams og Alexis Ohanian trúlofuðust í desember á síðasta ári.
Þau Serena Williams og Alexis Ohanian trúlofuðust í desember á síðasta ári. Vísir/afp
Tennisstjarnan Serena Williams gekk á fimmtudag að eiga unnusta sinn Alexis Ohanian, meðstofnanda vefsíðunnar Reddit.

Þema brúðkaupsins var Fríða og dýrið og voru gestirnir í kringum 200 talsins. Á gestalistanum voru stórstjörnur á borð við Beyonce, Kim Kardashian og Eva Longoria.

Williams og Ohanian hafa verið saman frá árinu 2015 en þau kynntust á hóteli í Róm á Ítalíu. Skötuhjúin eignuðust sitt fyrsta barn fyrir 11 vikum síðan, dótturina Alexis Olympia.

Tók Williams sig stórglæsilega út í þeim þremur brúðarkjólum sem hún klæddist í brúðkaupinu eins og sjá má á myndunum hér að neðan.

A post shared by Vogue (@voguemagazine) on

A post shared by Vogue (@voguemagazine) on

A post shared by Vogue (@voguemagazine) on


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×