Handbolti

Fuchse Berlin með sigur á Porto

Dagur Lárusson skrifar
Liðsmenn Fuchse Berlin fagna.
Liðsmenn Fuchse Berlin fagna.
Bjarki Már Elíasson og félagar í Fuchse Berlin mættu portúgalska liðinu Porto í EHF bikarnum í handbololta en leiknum var að ljúka rétt í þessu.

Það var hart tekist á í leiknum og skiptust liðin á að vera með forystuna í fyrri hálfleiknum en staðan í leikhlé var 14-12 fyrir gestunum frá Berlín.

Gestirnir héldu forystunni mest allan seinni hálfleikinn og unnu að lokum sigur þrátt fyrir spennuþrungnar lokamínútur en lokastaðan var 30-27 fyrir Fuchse Berlin.

Króatinn Jakov Gojun fékk að líta rauða spjaldið í en einnig var eitthvað um gul spjöld í leiknum. Bjarki Már Elíasson var með þrjú mörk en markahæsti leikmaður Fuchse Berlin var daninn Hans Lindberg með ellefu mörk.

Þetta var fyrri viðureign liðanna í 3.umferð keppninnar en liðin mætast á nýjan leik í Þýsklandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×