Golf

Valdís endaði þriðja og er örugg með keppnisrétt á næsta ári

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Valdís Þóra náði sínum besta árangri á LET-mótaröðinni.
Valdís Þóra náði sínum besta árangri á LET-mótaröðinni. Mynd/gsimyndir.net/Seth
Valdís Þóra Jónsdóttir endaði í þriðja sæti á Sanya Ladies Open mótinu í golfi sem lauk í Kína í nótt.

Íslandsmeistarinn spilaði alla þrjá hringi mótsins mjög vel, hún var þriðja eftir fyrsta hring, önnur eftir gærdaginn, en missti Solar Lee frá Suður-Kóreu upp fyrir sig í nótt og endar í þriðja sæti mótsins.

Þetta er besti árangur Valdísar á Evrópumótaröðinni á tímabilinu, en áður hafði hún best ná 22. sæti á þeim sjö mótum sem hún tók þátt í.

Fyrir árangurinn fær Valdís 18 þúsund evrur, eða 2,2 milljónir króna.

Skagakonan fór hringinn í dag á pari. Hún fékk þrjá fugla, þrjá skolla og fór restina af holunum á pari. Samanlagður árangur hennar yfir alla þrjá keppnisdaga var því sjö högg undir pari.

Frakkinn Celine Boutier vann mótið á 12 höggum undir pari.

Þessi glæsilegi árangur Valdísar Þóru þýðir að hún er orðinn örugg með áframhaldandi þáttökurétt á Evrópumótaröðinni, sterkustu mótaröð Evrópu, á næsta ári.

Fyrir mótið var Valdís í 113. sæti peningalistans. 80 efstu kylfingarnir fá fullan þáttökurétt á næsta tímabili. Nú er hún stokkin upp í 50. sæti listans þegar aðeins eitt mót er eftir á mótaröðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×