Enski boltinn

Sjáðu mörkin úr leikjum gærdagsins │ Myndbönd

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Tuttugu og sex mörk voru skoruð í leikjunum átta í ensku úrvalsdeildinni í gær.

Stórleik Arsenal og Tottenham lauk með 2-0 sigri heimamanna. Manchester United, Chelsea og Bournemouth skoruðu öll fjögur mörk hver.

Fjögur mörk voru skoruð í leik Crystal Palace og Everton þar sem Gylfi Þór Sigurðsson lagði upp sitt fyrsta mark fyrir Everton í ensku úrvalsdeildinni.

Burnley lagði Swansea 2-0 og Manchester City skoraði tvö gegn Leicester.

Þá skoraði Mohamed Salah tvö mörk fyrir Liverpool í 3-0 sigri á Southampton.

Öll mörk dagsins og önnur atvik úr leikjunum má sjá í spilurunum hér í fréttinni.

Manchester United - Newcastle 4-1
Liverpool - Southampton 3-0
West Brom - Chelsea 0-4
Arsenal - Tottenham 2-0
Leicester - Manchester City 0-2
Crystal Palace - Everton 2-2
Burnley - Swansea 2-0
Bournemouth - Huddersfield 4-0



Fleiri fréttir

Sjá meira


×