Enski boltinn

Klopp bað frú Moreno afsökunar

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Alberto Moreno
Alberto Moreno vísir/getty
Jurgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, bað Lilia Moreno afsökunar í viðtali eftir leik Liverpool og Southampton á því að hafa komið í veg fyrir að Alberto Moreno hafi verið viðstaddur fæðingu sonar síns.

Lilia eignaðist annað barn þeirra hjóna á aðfaranótt laugardags þegar Alberto var steinsofandi á hótelinu þar sem lið Liverpool undirbýr sig fyrir leiki.

„Hann var á hótelinu þegar sonurinn fæddist. Afsakið,“ sagði Klopp en Liverpool sigraði 3-0 og stóð Moreno sig með ágætum í leiknum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×