Innlent

Strætisvagn og vörubíll rákust saman á Reykjanesbraut

Kristín Ólafsdóttir og Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifa
Slysið varð um hádegisbil í dag. Mynd er frá vettvangi.
Slysið varð um hádegisbil í dag. Mynd er frá vettvangi. Vísir
Strætisvagn ók aftan á vörubíl á Reykjanesbraut um hádegisbil í dag. Þrír voru fluttir á slysadeild til skoðunar. 

Bílstjóri vörubílsins var einn í bílnum þegar slysið varð. Varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu segir sjö hafa verið í strætisvagninum. Bílstjóri vagnsins var á meðal þeirra sem fluttur var á sjúkrahús.

Áreksturinn var harður eins og sést á meðfylgjandi myndum en strætisvagninn lenti aftan á vörubílnum. Afturhluti bílsins fór þannig að stórum hluta í gegnum framrúðu strætisvagnsins sem er töluvert skemmdur.

Engar teljanlegar umferðartafir hafa orðið vegna árekstursins að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu. Enn er þó nokkur viðbúnaður á vettvangi.

Uppfært klukkan 12:53:

Bílstjóri strætisvagnsins og einn farþegi voru fluttir á slysadeild til skoðunar. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu er enginn talinn alvarlega slasaður. Enn er ekki ljóst hvort þeir farþegar strætisvagsins sem eftir urðu á vettvangi fái áfallahjálp.

Tildrög árekstursins eru enn óljós og þá er ekki er vitað hvort vörubíllinn var kyrrstæður þegar strætisvagninn hafnaði aftan á honum. Ekki hafa heldur fengist upplýsingar um hálku á vettvangi.

Viðbragðsaðilar athafna sig enn á staðnum og gert er ráð fyrir að slökkviliðs- og lögreglumenn verði þar við störf einhverja stund í viðbót. Þá er ekki enn vitað hvenær vörubíllinn og strætisvagninn verða fjarlægðir af vettvangi en greið leið er fyrir umferð fram hjá slysstað.

Uppfært klukkan: 13:18:

Þrír voru fluttir á slysadeild eftir áreksturinn, bílstjóri vörubifreiðarinnar, bílstjóri strætisvagnsins og einn farþegi úr vagninum. Að sögn blaðamanns á staðnum voru aðrir farþegar sóttir en fólk var eðlilega í miklu áfalli. 

Það mátti litlu muna að verr færi en aðeins munaði nokkrum sentímetrum á því að pallur vörubílsins færi á bílstjóra strætisvagnsins. 

Í fyrstu útgáfu af þessari frétt kom fram að samkvæmt slökkviliðinu hefðu tveir verið fluttir á sjúkrahús en rétt er að þrír voru fluttir, það hefur nú verið uppfært. 

Frá Reykjanesbraut í dag.Vísir
Greið leið er fyrir umferð fram hjá slysstað.Vísir



Fleiri fréttir

Sjá meira


×