Enski boltinn

PSG þarf að borga 20 milljónir fyrir Mourinho

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
José Mourinho er dýr fengur
José Mourinho er dýr fengur vísir/getty
Manchester United hefur bætt 20 milljón punda skaðabótapakka ofan á samning knattspyrnustjórans Jose Mourinho sem önnur félög þyrftu að greiða til þess að fá Portúgalann í sínar raðir.

United setur þessar ráðstafanir í ljósi orðróms um að franska stórveldið PSG vilji fá Mourinho til sín.

Mourinho er samingsbundinn United til 2019 en það er klásúla í samningnum sem veitir United tækifæri á að framlengja honum um eitt ár næsta sumar og binda Mourinho á Old Trafford til 2020.

Mourinho sjálfur hefur ýtt undir orðróma um að hann sé á leiðinni til Parísar með því að fara fögrum orðum um franska félagið, en talið er að það sé bara kænska í Portúgalanum til þess að fá betri samning hjá United, en hann fær í dag 10 milljónir punda á ári í laun hjá félaginu.

Manchester United er í öðru sæti ensku úrvalsdeildarinnar, átta stigum á eftir grönnunum í Manchester City, en liðið vann 4-1 sigur á Newcastle á heimavelli í gær. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×