Lífið

Sjáðu Örnu Ýr sýna „þjóðbúninginn“ í Miss Universe

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Arna Ýr, glæsileg að vanda.
Arna Ýr, glæsileg að vanda. Mynd/Arna Ýr
Fegurðardrottningin Arna Ýr Jónsdóttir er nú á fullu að undirbúa sig undir Miss Universe keppnina sem fram fer um næstu helgi. Í gær sýndi hún „þjóðbúning“ Íslands á sérstökum viðburði í Las Vegas í Bandaríkjunum þar sem keppnin fer fram.

Arna Ýr sýndi búninginn, sem er auðvitað ekki hin einni sanni þjóðbúningur Íslands, á Instagram-síðu hennar í gær. Búningurinn er glæsilegur víkingabúningur sem á að vera óður til sterkra víkingakvenna.

Allir þáttakendur í Miss Universe sýndu „þjóðbúning“ sinna landa í gær og var Arna Ýr glæsileg á sviðinu.

„Í anda sterkra víkingakvenna er Ísland í þjóðbúningi sem búinn er til úr svörtum fjöðfum, gerviroði og með batteríknúna exi sem lýsist upp. Þessi víkingur er sláandi,“ sagði kynnirinn þegar Arna Ýr gekk á sviðið.

Sjá má Örnu Ýr á sviðinu í myndbandinu hér fyrir neðan en Arna Ýr gengur á sviðið þegar 29 mínútur er liðnar af myndbandinu.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×