Fótbolti

Skutu púðurskotum í fyrsta skipti í fimm ár

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Messi svekktur yfir markaleysinu í leiknum í gær.
Messi svekktur yfir markaleysinu í leiknum í gær. vísir/getty
Þegar Barcelona spilar í riðlakeppni Meistaradeildarinnar þá rignir venjulega mörkum en ekki í gær er liðið sótti Olympiacos heim.

Leiknum lyktaði með markalausu jafntefli. Barcelona átti 19 skot í leiknum en ekkert þeirra vildi fara inn í markið.

Næst komst liðið marki er Luis Suarez átti skot í slána. Hann var líka óeigingjarn í eitt skipti er hann komst í dauðafæri. Þá reyndi hann frekar að gefa á Lionel Messi en það gekk ekki.

Olympiacos getur verið stolt af því að vera fyrsta liðið í heil fimm ár sem nær að halda Börsungum markalausum í leik í riðlakeppni Meistaradeildarinnar.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×