Erlent

Tvískinnungur Hvíta hússins varðandi árásir

Samúel Karl Ólason skrifar
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna.
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna. Vísir/Getty
Eftir að Stephen Paddock, frá Iowa, skaut 58 manns til bana og særði rúmlega 500 á tónleikum í Las Vegast í síðasta mánuði, með löglegum búnaði til að auka skothraða vopna, neituðu starfsmenn Hvíta hússins að tala um mögulegar breytingar á byssulöggjöf Bandaríkjanna. Sarah Huckabee Sanders, talskona Donald Trump, sagði þá umræðu ekki vera við hæfi heldur væri tími til að syrgja og safna staðreyndum málsins áður en umræða um stefnumál færi af stað.

Eftir að Sayfullo Saipov, innflytjandi frá Úsbekistan, myrti átta manns og særði ellefu í New York í gærkvöldi var Donald Trump nánast samstundis mættur á Twitter þar sem hann kallaði eftir hertari reglum varðandi innflytjendur og sagðist hafa skipað heimavarnarráðuneyti Bandaríkjanna að herða bakgrunnsskoðanir á innflytjendum.

„Pólitískur rétttrúnaður er svo sem allt í lagi, en ekki í þessu tilfelli,“ skrifaði Trump.

Enn er ekki vitað af hverju Paddock framdi fjöldamorðið, sem er ekki skilgreint sem hryðjuverk af yfirvöldum í Bandaríkjunum. Saipov er sagður hafa skilið eftir miða í bílnum þar sem hann lýsti yfir hollustu við Íslamska ríkið.

Forsetinn hélt svo áfram að tísta nú í morgun og sagði hryðjuverkamanninn hafa komið inn í Bandaríkin í gegnum svokallað „fjölbreytileika lottó“. Það væri Chuck Schumer, leiðtoga demókrata á öldungadeild þingsins.

Fregnir hafa borist af því í morgun að Saipov hafi komið til landsins í gegnum lottóið en þær hafa ekki verið staðfestar, samkvæmt frétt Washington Post.



Trump sagði einnig að hann væri að berjast fyrir innflytjendakerfi sem tæki mið af hæfni innflytjenda í stað lottósins. Það væri nauðsynlegt fyrir Bandaríkin að verða sterkari og gáfaðri í þessum málum.

Við það bætti hann svo tilvitnun í gest þáttarins Fox and Friends að Schumer væri að flytja „vandamál Evrópu“ til Bandaríkjanna og sagði Trump að nauðsynlegt væri að stöðva þessa „geðveiki“.

Eftir árásina í Las Vegas fengu starsfsmenn Hvíta hússins og talsmenn Trump skjal þar sem lagðar voru línur varðandi orðræðuna í kjölfar árásarinnar. Blaðamenn ABC komu höndum yfir skjalið og þar mátti sjá að línurnar voru á þá leið að Alríkislögregla Bandaríkjanna hefði ekki fundið nein tengsl á milli Paddock og hryðjuverkasamtaka.

Sömuleiðis átti fólk að ítreka að nauðsynlegt væri að safna öllum upplýsingum áður en umræða um stefnumál og byssulöggjöf í Bandaríkjunum færi fram. Rannsóknin væri enn á frumstigi.

Þar kom einnig fram að fólk ætti að ítreka að Trump væri stuðningsmaður grunnréttinda Bandaríkjanna, málfrelsis, trúfrelsis og frelsis til byssueignar. Það væri bæði hægt að tryggja þann rétt Bandaríkjamanna og tryggja öryggi þeirra.

Einnig stóð í skjalinu að hert löggjöf varðandi byssueign myndi líklega ekki koma í veg fyrir skotárásir.

Ótímabært og ekki við hæfi

Degi eftir árásina í Las Vegas ræddi Sarah Huckabee Sanders við blaðamenn í Hvíta húsinu og kom hún sér ítrekað undan spurningum varðandi byssulöggjöf með því að segja „ótímabært“ og ekki við hæfi að ræða það.

Hins vegar fór hún fljótt að ræða Chicago og fjölda morða þar með skotvopnum. Hvernig ströng lög hefði ekki hjálpað þar. Eins og það var orðað í frétt Washington Post: „Þetta er Hvíta húsið að tala ekki um byssulöggjöf“.

Eftir skotárásina á skemmtistaðnum Pulse í Orlandi í fyrra, þar sem 50 manns dóu, var Trump einnig mættur á Twitter þann sama dag. Þar talaði hann um „múslimabannið“ svokallaða og að nauðsynlegt væri að koma í veg fyrir að íbúar nokkurra landa, þar sem lang flestir íbúar eru múslimar, gætu ekki ferðast til Bandaríkjanna.

Pulse árásin var framkvæmd af Omar Mateen, múslima og syni innflytjenda frá Afganistan.



Trump gerði hið sama þegar sprengju var komið fyrir í lest í London í september. Þá kallaði hann eftir því að „múslimabanninu“ yrði komið á. Dómarar höfðu þá komið í veg fyrir það.

Svo í kjölfar árásarinnar á London brú í sumar kallaði hann einnig eftir múslimabanninu og gagnrýndi Sadiq Khan, sem er fyrsti músliminn til að stija í borgarstjórastól í London.

Eftir að hvítur rasisti ók inn í hóp mótmælenda í Charlottesville í ágúst svo einn lét lífið neitað Trump um skeið að fordæma nasista og þjóðernissinna sem höfðu komið saman í borginni og sagði „mörgum hliðum“ um að kenna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×