Tónlist

Iceland Airwaves hafin: Ásgeir Trausti tróð upp á Grund

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ásgeir stóð sig mjög vel.
Ásgeir stóð sig mjög vel. vísir/ernir
Iceland Airwaves tónlistarhátíðin var í dag formlega sett og í tilefni af því hélt Ásgeir Trausti tónleika á hjúkrunarheimilinu Grund.

Ernir Eyjólfsson, ljósmyndari 365, var á svæðinu og fangaði stemninguna á mynd, en heimilisfólkið virtist skemmta sér einstaklega vel.

Ásgeir Trausti spilaði óaðfinnanlega og var almenn ánægja með tónleikana.

Iceland Airwaves hefst í kvöld í 19. skipti og stendur hún yfir næstu daga. Hér að neðan má sjá myndir frá tónleikunum í dag. 

Heimilisfólkið skemmti sér mjög vel.
Fullt var út úr dyrum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×