Enn eitt tapið hjá Everton sem er úr leik

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Gylfi byrjaði sem fremsti maður hjá Everton í kvöld.
Gylfi byrjaði sem fremsti maður hjá Everton í kvöld. vísir/getty
Everton er úr leik í Evrópudeildinni eftir 3-0 tap fyrir Lyon í kvöld.

Gylfi Þór Sigurðsson lék allan leikinn fyrir Everton sem hefur aðeins náð í eitt stig í fjórum leikjum í E-riðli Evrópudeildarinnar.

Bertrand Traoré kom Lyon yfir á 68. mínútu. Rétt áður hafði Gylfi átt skot rétt framhjá marki Frakkanna.

Houssem Aouar bætti öðru marki við á 76. mínútu og tveimur mínútum fyrir leikslok skoraði Memphis Depay þriðja mark Lyon sem er í 2. sæti riðilsins með átta stig.

Þegar 10 mínútur voru til leiksloka fékk Morgan Schneiderlin, miðjumaður Everton, að líta sitt annað gula spjald og þar með rautt.

Þetta var fimmta tap Everton í röð í öllum keppnum. Liðið vann síðast leik 23. september.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira