Arsenal öruggt áfram

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jack Wilshere komst næst því að skora fyrir Arsenal.
Jack Wilshere komst næst því að skora fyrir Arsenal. vísir/getty
Arsenal er komið áfram í 32-liða úrslit Evrópudeildarinnar eftir markalaust jafntefli við Rauðu stjörnuna á Emirates í kvöld.

Arsenal er með 10 stig á toppi H-riðils en Skytturnar hafa unnið þrjá af fjórum leikjum sínum og gert eitt jafntefli.

Jack Wilshere komst næst því að skora fyrir Arsenal um miðjan seinni hálfleik en skoti hans var bjargað á línu.

Rauða stjarnan er í 2. sæti riðilsins með fimm stig, einu stigi á undan BATE Borisov og tveimur stigum á undan Köln.

Köln rústaði BATE, 5-2, í hinum leik riðilsins í kvöld.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira