Enski boltinn

Gylfi fremsti maður hjá Everton í kvöld

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Gylfi Þór Sigurðsson í leik með Everton.
Gylfi Þór Sigurðsson í leik með Everton. Vísir/Getty
Gylfi Þór Sigurðsson mun í kvöld spila sinn fyrsta byrjunarliðsleik fyrir David Unsworth síðan að Unsworth settist í knattspyrnustjórastól Everton eftir að Ronald Koeman var rekinn.

Gylfi hefur verið á varamannabekknum í fyrstu tveimur leikjunum en fær nú tækifærið til að sýna sig og sanna.

Everton verður að vinna Lyon í kvöld til þess að eiga möguleika á því að komast í 32 liða úrslit Evrópudeildarinnar.  Liðið hefur aðeins náð í eitt stig í fyrstu þremur leikjum sínum.

Samkvæmt uppstillingu á heimasíðu evrópska knattspyrnusambandsins, UEFA, þá mun Gylfi spila sem fremsti maður hjá Everton í kvöld.

Gylfi er einn upp á topp en fyrir aftan hann eru þeir Aaron Lennon, Beni Baningime og Ademola Lookman.

Hér fyrir neðan má sjá byrjunarlið Everton á móti Lyon í kvöld.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×