Rosenborg á enn möguleika | Öll úrslit kvöldsins

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Nicklas Bendtner hefur verið sjóðheitur að undanförnu.
Nicklas Bendtner hefur verið sjóðheitur að undanförnu. vísir/getty
Rosenborg á enn möguleika á að komast upp úr L-riðli Evrópudeildarinnar eftir 1-1 jafntefli við Zenit frá Pétursborg á Lerkendal í kvöld. Nicklas Bendtner skoraði mark norsku meistarana úr vítaspyrnu.

Rosenborg er með fjögur stig í 3. sæti riðilsins, fimm stigum á eftir Real Sociedad sem er í 2. sætinu.

Rosenborg verður því að vinna báða leikina sem liðið á eftir til að eiga möguleika á að komast í 32-liða úrslit.

Matthías Vilhjálmsson er enn frá vegna meiðsla hjá Rosenborg.

Fjölmargir aðrir leikir fóru fram í Evrópudeildinni í kvöld. Úrslit þeirra má sjá hér fyrir neðan.

A-riðill:

Maccabi Tel Aviv 0-1 Astana

Slavia Prag 0-2 Villarreal

B-riðill:

Partizan Belgrad 2-0 Skenderbeu

Young Boys 0-1 Dynamo Kiev

C-riðill:

Basaksehir 1-1 Hoffenheim

Ludogorets 1-1 Braga

D-riðill:

AEK Aþena 0-0 AC Milan

Rijeka 1-4 Austria Vín

E-riðill:

Lyon 3-0 Everton

Apollon 1-1 Atalanta

F-riðill:

FC Köbenhavn 3-0 Zlin

Lokomotiv Moskva 1-2 Sheriff Tiraspol

G-riðill:

FCSB 1-1 H. Be'er Sheva

Viktoria Plzen 4-1 Lugano

H-riðill:

Arsenal 0-0 Rauða stjarnan

Köln 5-2 BATE Borisov

I-riðill:

Salzburg 0-0 Konyaspor

Guimaraes 1-0 Marseille

J-riðill:

Ath. Bilbao 1-0 Östersunds

Hertha Berlin 2-0 Zorya Luhansk

K-riðill:

Lazio 1-0 Nice

Vitesse 0-2 Zule Waregem

L-riðill:

Rosenborg 1-1 Zenit

Real Sociedad 3-0 Vardar


Tengdar fréttir

Arsenal öruggt áfram

Arsenal er komið áfram í 32-liða úrslit Evrópudeildarinnar eftir markalaust jafntefli við Rauðu stjörnuna á Emirates í kvöld.

Ballið búið hjá Viðari og félögum

Viðar Örn Kjartansson lék allan leikinn fyrir Maccabi Tel Aviv sem tapaði 0-1 fyrir Astana á heimavelli í A-riðli Evrópudeildarinnar í kvöld.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira