Glamour

Airwaves 2017: Pelsar, silki og yndisfagrir tónar

Ritstjórn skrifar
Myndir: Rakel Tómas
Tónleikahátíðin Airwaves fer vel af stað og vel klæddir tónleikagestir arka brosandi um bæinn. Íslenska veðurfarið er ekki upp á sitt besta þessa dagana og því forvitnilegt að virða fyrir sér fataval fólks, enda götutískan alltaf skemmtileg.

Glamour kíkti á stemninguna í Gamla bíói með myndavélina á lofti, þar sem Hildur, Högni og Moses Hightower voru meðal þeirra sem komu fram. 

Litríkar yfirhafnir í retró-stíl eru heitar í vetur.
Hvítt silki, afhverju ekki?
Tónlistarkonan Hildur í bleiku frá toppi til táar.
Sigríður Thorlacius og Hildur Yeoman.
Mikilvægt er að klæða sig eftir veðri, enda allra veðra von á þessum árstíma.
Hattur og frakki eiga alltaf við.
Síðkjólar eiga alltaf vel við.





×