Erlent

Kelley drap ömmu eiginkonu sinnar í kirkjunni

Atli Ísleifsson skrifar
Lögreglan hefur gefið út að Kelley hafi mætt í kirkjuna með fimmtán skothylki og hann hafi skotið 450 skotum.
Lögreglan hefur gefið út að Kelley hafi mætt í kirkjuna með fimmtán skothylki og hann hafi skotið 450 skotum. Vísir/AFP
Ein af þeim 26 sem létu lífið í árás Devin Patrick Kelley í baptistakirkjunni í Sutherland Springs í Texas á sunnudag var hin 71 árs gamla Lula White, amma eiginkonu Kelley.

Lögregla staðfesti í gær að Kelley hafi sent tengdamóður sinni hótanir í textaskilaboðum, en hún var tíður gestur í kirkjunni þar sem ódæðið var framið.

Tengdamóðir Kelley var ekki viðstödd sunnudagsmessuna um helgina þar sem mesta fjöldamorðið í sögu Texas ríkis var framið. Bandarískir fjölmiðlar – CNN og CBS News þeirra á meðal – greina hins vegar frá að móðir tengdamóður Kelley hafi verið í kirkjunni og látið þar lífið.

White á lengi að hafa starfað sem sjálfboðaliði innan kirkjunnar. Mary Mishler Clyburn, systir White, segir hana hafa verið æðislega og ástríka manneskju sem hafi elskað guð sinn.

„Hún elskaði kirkju sína. Þau voru öll bestu vinir hennar,“ segir Clyburn.

Bandarískir fjölmiðlar greindu frá því í gær að bandaríska flughernum hafi láðst að greina alríkislögreglunni FBI að Kelley hafi hlotið árs dóm árið 2012 fyrir að hafa beitt eiginkonu sína og barni ofbeldi. Tveimur árum síðar var hann rekinn úr hernum með skömm. Með slíkan dóm á bakinu hefði hann ekki átt að geta keypt sér skotvopn, en vegna mistaka var FBI aldrei tilkynnt um dóminn.

Lögreglan hefur gefið út að Kelley hafi mætt í kirkjuna með fimmtán skothylki og hann hafi skotið 450 skotum.

Fórnarlömb Kelley voru á aldrinum átján mánaða til 77 ára. Þegar Kelley yfirgaf kirkjuna lenti hann í skotbardaga við heimamanninn Stephen Willeford. Lögreglan segir Willeford hafa sært Kelley áður en honum tókst að flýja af vettvangi.

Willeford og Johnny Langendorf, annar heimamaður, eltu Kelley á bíl. Kelley hringdi í föður sinn úr bílnum og sagði að hann myndi ekki lifa þetta af og mun svo hafa skotið sig, samkvæmt lögreglu.


Tengdar fréttir

Segir vandamálið varða geðheilbrigði, ekki byssur

Donald Trump segir ekki hægt að kenna byssulögum í Bandaríkjunum um það að maður vopnaður hálfsjálfvirkum riffli og í skotheldu vesti myrti 26 manns í kirkju í Sutherland Springs í gær.

Kelley hafði rifist við tengdamóður sína

Devin Patrick Kelley, sem sagður er hafa myrt 26 manns í kirkju í Sutherland Springs í Texas í gær, var með þrjár byssur þrátt fyrir að vera ekki með byssuleyfi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×