Umdeild vítaspyrna færði Svisslendingum sigur í Belfast | Sjáið sigurmarkið

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Svisslendingar eru í fínum málum í umspili um sæti á HM í Rússlandi eftir 1-0 útisigur á Norður-Írlandi í fyrri leik liðanna í umspili um laust sæti á HM 2018.

Sigurmarkið kom úr umdeildri vítaspyrnu eftir tæplega klukkutíma leik. Sigurinn var samt sanngjarn því svissneska liðið var betri aðilinn í leiknum.

Norður-Írar hafa ekki komist á HM síðan á HM í Mexíkó og fannst á sér brotið þegar vítaspyrna var dæmd á liðið þegar skotið var í hendi Corry Evans af stuttu færi.

Corry Evans fékk ekki aðeins á sig víti heldur einnig gult spjald sem þýðir að hann verður í leikbanni í seinni leiknum.

Ricardo Rodríguez skoraði af öryggi úr vítaspyrnunni og það reyndist vera eina mark leiksins.  Það er hægt að sjá svipmyndir frá leiknum í spilaranum hér fyrir ofan.

Seinni leikur liðanna er í Sviss á sunnudaginn.





Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira