Innlent

Áslaug Ýr tapaði í Hæstarétti: Ekki talin eiga rétt á túlkaþjónustu

Nína Hjördís Þorkelsdóttir skrifar
Áslaug Ýr segist hvergi af baki dottin í réttindabaráttu sinni.
Áslaug Ýr segist hvergi af baki dottin í réttindabaráttu sinni. vísir/anton brink
Hæstiréttur hafnaði í dag að ógilda synjun Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra um endurgjaldslausa túlkaþjónustu Áslaugar Ýrar Hjartardóttur, 21 árs gamallar daufdumbrar konu. Hún hafði óskað eftir þjónustunni í tengslum við þátttöku hennar í sumarbúðum fyrir daufdumb ungmeni í Svíþjóð.

„Hæstiréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms. Ég er vonsvikin, enda taldi ég mig búa í réttarríki. Nú mun ég setjast niður og íhuga næstu skref, baráttunni er hvergi lokið," skrifaði Áslaug á Facebook skömmu eftir að niðurstöður í málinu lágu fyrir. 

Dóminn má lesa í heild sinni hér

Áslaug hafði óskað eftir þjónustunni hjá Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra í lok sumars 2016 en hún hugðist taka þátt í áðurnefndum sumarbúðum í júlí 2017. Fyrir lá að Áslaug þyrfti nauðsynlega á túlkaþjónustu að halda hygðist hún taka þátt í sumarbúðunum en hún er með arfgengan taugahrörnunarsjúkdóm og glímir við heyrnarleysi og sjónskerðingu vegna sjúkdómsins.

Erindi Áslaugar var svarað í desember á síðasta ári og var þar tekið fram að menntamálaráðuneytið veitti aðeins fé til endurgjaldslausrar túlkaþjónustu innanlands úr félagslegum sjóði. Þar sem Áslaug þurfti á þjónustunni að halda utan landsteinanna var kröfu hennar hafnað og hefði hún því þurft að greiða fyrir þjónustu og ferðakostnað vegna túlks sjálf.

Áslaug höfðaði mál til ógildingar ákvörðunarinnar og krafðist einnig miskabóta með vísan til þess að ákvörðunin hefði falið í sér ólögmæta meingerð gegn persónu sinni.

Í málinu, sem var fyrst tekið fyrir héraðsdómi í sumar, var meðal annars deilt um hvort kostnaðurinn við túlkaþjónustu Áslaugar væri óhóflega mikill og hefði þannig áhrif á aðra sem vildu sækja um styrk úr sjóðnum. Fyrir lá að kostnaðurinn myndi nema 18% af fénu sem ráðstafað var fyrir tiltekið tímabil. Ástæðan fyrir svo háum kostnaði var meðal annars sú að vegna mikillar fötlunar Áslaugar þyrfti hún að minnsta kosti fjóra túlka sér til aðstoðar.

Hæstiréttur staðfesti dóm héraðsdóms og tók ekki afstöðu til þess hvort meginröksemd synjunar Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra, þ.e. að ekki væri hægt að kosta táknmálsþjónustu erlendis, héldi vatni. Hins vegar hafnaði Hæstiréttur að ógilda synjunina á grundvelli þess að veiting þjónustunnar hefði orðið til þess að fjármagn til hennar hefði hvorki enst út tímabilið né virt jafnræði notenda hennar. Þá taldi Hæstiréttur ekki annmarka á málsmeðferð stofnunarinnar, líkt og haldið var fram. 

Mál Áslaugar hefur vakið talsverða athygli er héraðsdómur komst að sömu niðurstöðu og Hæstiréttur fyrr í sumar. Áslaug tjáði sig um dóminn á samfélagsmiðlum og gagnrýndi hann harkalega. 

„Dómur féll í málinu í dag og var það niðurstaða dómara að sýkna SHH og ríkið. Hins vegar fékk ég gjafsókn, sem er í sjálfu sér örlítill sigur og ég tek slíku sem hvatningu. Þetta segir mér þó aðeins að breyta þarf lögum og reglum landsins okkar til að tryggja mannréttindi okkar allra,“ skrifaði Áslaug á Facebook í tilefni synjunar héraðsdóms í sumar. 

Þess má geta að Áslaug fór í ferðina fyrirhuguðu í sumar þrátt fyrir að hafa ekki fengið túlkaþjónustuna greidda af ríkinu. Mikill samhugur ríkti vegna máls Áslaugar og stóðu meðlimir líkamsræktarstöðvarinnar Crossfit XY í Garðabæ meðal annars fyrir söfnun til þess að ferð Áslaugar gæti orðið að veruleika. 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×