Innlent

Marshall-húsið og Bláa Lónið hljóta Hönnunarverðlaun Íslands

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Hönnunarverðlaun Íslands voru afhent í fjórða sinn í kvöld við hátíðlega athöfn í IÐNÓ.
Hönnunarverðlaun Íslands voru afhent í fjórða sinn í kvöld við hátíðlega athöfn í IÐNÓ. Vísir/GVA
Hönnunarverðlaun Íslands voru afhent í fjórða sinn í kvöld við hátíðlega athöfn í IÐNÓ. Veitt voru verðlaun í tveimur flokkum, Hönnunarverðlaun Íslands og Besta fjárfesting í hönnun 2017. Að þessu sinni voru Marshall-húsið og Bláa Lónið verðlaunuð

„Hönnunarverðlaun Íslands eru þýðingarmikil fyrir íslenskt hönnunarsamfélag. Þótt vægi hönnunar í menningu okkar, samfélagi og viðskiptalífi sé að aukast er mikilvægt að vekja athygli og dýpka skilning á gildi góðrar hönnunar,“ segir í tilkynningu um verðlaunin. Hönnunarverðlaun Íslands 2017 eru peningaverðlaun að upphæð 1.000.000 krónur, veitt af Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur, iðnaðar- og viðskiptaráðherra.

Handhafar Hönnunarverðlauna Íslands 2017 eru Ásmundur Hrafn Sturluson og Steinþór Kári Kárason arkitektar Kurt og Pí, fyrir Marshall-húsið. Þeir leiddu hönnun verksins í samstarfi við ASK arkitekta. Marshall-húsið er nýr vettvangur lista við gömlu höfnina í Reykjavík. Húsið var byggt árið 1948 sem síldarbræðsla en hýsir nú Nýlistasafnið, Kling og Bang, Stúdíó Ólafs Elíassonar ásamt vinnustofu og Marshall Restaurant + Bar. 

Umsögn dómnefndar um Marshall -húsið:

„Verkið kristallar vel heppnaða umbreytingu eldra iðnaðarhúsnæðis fyrir nýtt hlutverk í samtímanum. Arkitektarnir hafa þróað verkefnið frá hugmyndavinnu til útfærslu og leitt saman breiðan hóp aðila til að skapa heilsteypt verk. Í verkinu er vel unnið með sögu byggingarinnar og samhengi staðar og til verður nýr áfangastaður fyrir samtímalist í Reykjavík á áhugaverðu þróunarsvæði í borginni. Marshall húsið er gott  dæmi um hvernig með aðferðum hönnunar verður til nýsköpun í borgarumhverfinu.“

Bláa Lónið hlaut viðurkenningu fyrir Bestu fjárfestingu í hönnun 2017. Viðurkenning fyrir Bestu fjárfestingu í hönnun er veitt fyrirtæki sem hefur hönnun eða arkitektúr að leiðarljósi frá upphafi verka til að auka verðmætasköpun og samkeppnishæfi.

Umsögn dómnefndar um Bláa Lónið:

„Hönnun er órjúfanlegur hluti af heildarmynd fyrirtækisins sem vinnur náið með framúrskarandi arkitektum og hönnuðum þvert á greinar. Þessi framsýni á svo sannarlega þátt í því að fyrirtækið hefur notið þeirrar velgengni sem raun ber vitni og átt sinn þátt í vinsældum Íslands sem áfangastaðar. Bláa Lónið er eitt besta dæmið á Íslandi um það að fjárfesting í góðri hönnun margborgar sig.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×