Tónlist

Bestu og furðulegustu íslensku plötuumslögin

Stefán Þór Hjartarson skrifar
Ótrúlega góður bældleiki og skemmtileg tilvísun í Snoop Dogg – Doggystyle umslagið
Ótrúlega góður bældleiki og skemmtileg tilvísun í Snoop Dogg – Doggystyle umslagið
Á föstudaginn var opnuð í Hönnunarsafni Íslands sýning á íslenskum plötuumslögum og af því tilefni okkur nauðsynlegt að fá nokkra álitsgjafa til að segja frá uppáhaldsplötuumslagi sínu. Álitsgjafarnir völdu einnig það plötuumslag sem þeim fannst skrítnast/skemmtilegast





Liturinn, hönnunin, áferðin og allt í kringum þessa plötu er bara dásamlegt.
Arnar Eggert Thoroddsen, poppfræðingur

Flottast

múm – Loksins erum við engin / Finally We Are No One

Liturinn, hönnunin, áferðin og allt í kringum þessa plötu er bara dásamlegt. Kallar fram nostalgískar tilfinningar í manni. Tíu tommu vínylútgáfan undirstrikar þetta allt saman betur.

Furðulegast

Haraldur Guðni Bragason – Askur

Haraldur þessi gaf plötuna út sjálfur. Af nógu er að taka í hinum svonefnda hamfarapoppsgeira en þetta umslag er með þeim allra „bestu“. Það er nánast ekki hægt að koma því í orð, hvað fer um mann þegar maður sér þetta.

Titillinn á plötunni gefur tóninn fyrir ævintýralega tilgerðarlegt og þreytt umslag hjá ungum manni á uppleið.
Kjartan Guðmundsson, upplýsingafulltrúi

Flottast

Utangarðsmenn – Geislavirkir (1980)

Vafalaust á nostalgían sinn þátt í því að mér finnst þetta umslag bera höfuð og herðar yfir önnur íslensk. Kjarnorkuváin svífur yfir vötnum og rímar þannig fullkomlega við plötutitilinn, umfjöllunarefni textanna og tíðarandann í upphafi níunda áratugarins þegar stóra sprengjan gat sprungið á hverri stundu. Flott, spennandi og afar vel heppnað, og rúsínan í pylsuendanum er svo þessi ógnandi Shatter-fontur í nafni hljómsveitarinnar. Fullkomið.

Furðulegast

Ólafur Arnalds – For Now I Am Winter (2013)

Titillinn á plötunni gefur tóninn fyrir ævintýralega tilgerðarlegt og þreytt umslag hjá ungum manni á uppleið. Gæti auðveldlega verið gullverðlaunahafi í heimsmeistarakeppninni í klisjum, þar sem listamaðurinn horfist í augu við tilgangsleysi allra hluta á meðan sjávargangurinn og brimrótið ólgar innra með honum. Gæti þó eflaust virkað sem framúrstefnuleg auglýsing fyrir lundabúð í Smáralind.

Þetta umslag eftir Sigga Eggerts er svo vel gert, kannski aðallega því þér finnst umslagið standa fyrir það sem þú ert að hlusta á.
Þura Stína, hönnuður og plötusnúður

Flottast

Apparat Organ Quartet – Pólýfónía

Þetta umslag eftir Sigga Eggerts er svo vel gert, kannski aðallega því þér finnst umslagið standa fyrir það sem þú ert að hlusta á.

Furðulegast

Tvíhöfði – Allt 

Þetta er auðvitað bara alveg grilluð pæling og plötukoverin í samræmi við það, mjög kómísk og skrýtin en samt svo geggjuð.

Fríkað og fallegt á sama tíma.
Magnús Leifsson, leikstjóri

Flottast

Megas & Spilverk þjóðanna – Á bleikum náttkjólum

Ég kemst alltaf að þeirri niðurstöðu að þetta sé besta plötuumslagið. Fríkað og fallegt á sama tíma.

Furðulegast

Diddi Fel – Hesthúsið

Ég elska þetta plötuumslag. Ótrúlega góður bældleiki og skemmtileg tilvísun í Snoop Dogg – Doggystyle umslagið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×