Golf

Tiger snýr aftur eftir mánuð

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Tiger á Bahamas-mótinu sínu í fyrra.
Tiger á Bahamas-mótinu sínu í fyrra. vísir/getty
Kylfingurinn Tiger Woods mun taka þátt í golfmóti í fyrsta sinn í níu mánuði í lok nóvember.

Hann hefur ákveðið að taka þá þátt í Hero World Challenge sem er mót sem hann stendur sjálfur fyrir og fer fram á Bahamas.

Tiger tók síðast þátt í móti í byrjun febrúar en þurfti þá að hætta vegna bakmeiðsla. Hann fór í kjölfarið í enn eina aðgerðina.





Síðasta bakaðgerð varð hans fjórða á síðustu þremur árum. Margir héldu að hann myndi aldrei koma til baka en Tiger ætlar að láta reyna á þetta einu sinni enn.

Á þetta boðsmót Tigers mæta alltaf útvaldir toppkylfingar og að þessu sinni mæta meðal annars Dustin Johnson og Jordan Spieth.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×