Glamour

Bestu hrekkjavökubúningar Heidi Klum í gegnum árin

Ritstjórn skrifar
Heidi Klum sem gömul kona
Heidi Klum sem gömul kona Glamour/Getty
Þúsundþjalasmiðurinn Heidi Klum heldur svo sannarlega hátíðlega upp á hrekkjavökuna, og bíða flestir spenntir eftir búningum hennar ár eftir ár. Það verður gaman að sjá hvað hún ætlar að vera þetta árið, en þar til það kemur í ljós höfum við tekið saman hennar bestu búninga í gegnum árin. 

Frá árinu 2000 hefur Heidi haldið hrekkjavökupartý í New York, og hefur eftir það hlotið titilinn drottning hrekkjavökunnar

Árið 2013 klæddi hún sig upp sem gömul kona, og eyddi miklum tíma í þann búning. Hann tókst það vel, að hennar sögn, að fólk þekkti hana ekki. Hún þurfti að segja hver hún væri svo henni yrði hleypt inn í sína eigin veislu. 

Við bíðum spenntar eftir kvöldinu hjá Heidi, en eina sem hún hefur látið í ljós í sambandi við búninginn þetta árið, er, að hún hefur þurft að æfa sig mikið. 

Sem Jessica Rabbit
Sem Lady Godiva
Sem indversk hindú-prinsessa. Þessi búningur fékk misjöfn viðbrögð frá fólki.
Einhverskonar geimveru-vélmenni?
,,Sýnilega" konan
Með Seal, eiginmanni sínum, sem apar. Þessi búningur tók mjög langan tíma og sat Heidi ekki nema sex klukkutíma í förðunarstólnum.
Heidi, árið 2016, þar sem hún ,,klónaði" sjálfa sig fimm sinnum.
Sem köttur.





×