Lífið

Náði að hræða líftóruna úr fyrrverandi kærustum sínum með þessum búningi

Birgir Olgeirsson skrifar
Haleigh Conner hefur heldur betur slegið í gegn.
Haleigh Conner hefur heldur betur slegið í gegn. Instagram
Bandaríski háskólaneminn Haleigh Conner náði að gera grín að öllum fyrrverandi kærustum sínum á hrekkjavökunni. Hún klæddi sig í bol sem stóð á „commitment“, eða „skuldbinding, og náði þá væntanlega að hræða líftóruna úr þeim sem óttast skuldbindingu.

Hún gekk svo skrefinu lengra þegar hún birti mynd af sér í bolnum á Instagram og merkti alla fyrrverandi kærasta sína á myndina og óskaði öllum nema þeim gleðilegrar hrekkjavöku.

Í viðtali við Buzzfeed greindi hún frá því að ungu mennirnir sem hún merkti á myndina hefði flestir verið kærastar hennar í framhaldsskóla og ekki endilega einhverjir sem hún sér eftir að hafa misst af. Engin alvara hafi verið í þeim samböndum.

scariest thing I could think of #shoutouttomyexes

A post shared by Haleigh Conner (@hales.conn) on






Fleiri fréttir

Sjá meira


×