Innlent

Bein útsending: Umhverfisþing í Hörpu

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Þingið fer nú fram í tíunda sinn og er að þessu sinni haldið í Hörpu.
Þingið fer nú fram í tíunda sinn og er að þessu sinni haldið í Hörpu. vísir/eyþór
Bein útsending verður frá Umhverfisþingi í Hörpu sem hefst klukkan 9:00 í dag. Er þetta í tíunda sinn sem umhverfis-og auðlindaráðherra efnir til Umhverfisþings en að þessu sinni eru loftslagsmál í brennidepli.

Dagskrá þingsins er eftirfarandi en og þá má fylgjast með útsendingunni í spilaranum hér fyrir neðan.

•    09.00     Þingsetning og ávarp Björt Ólafsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra.

•    09.15     Hvernig getur lítið land verið í fararbroddi í loftlagsmálum? Heiðursgestur þingsins, Monica Araya

•    09.45     Raddir ungu kynslóðarinnar: Hvernig framtíð viljum við?  Bríet Felixdóttir og Saga Rut Sunnevudóttir nemendur í Menntaskólanum við Hamrahlíð

10.00 Kaffihlé

Hvaða áhrif hafa loftslagsbreytingar á Ísland?

•    10.30    Loftslagsbreytingar – áhrif á Ísland Halldór Björnsson, Veðurstofu Íslands

•    10.45    Hafið við Ísland – súrnun og hlýnun Sólveig Rósa Ólafsdóttir, Hafrannsóknastofnun

Losun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi – hvernig er staðan og hvert stefnir?

•    11.00    Þróun losunar og staða Íslands gagnvart Kýótó-bókuninni Kristín Linda Árnadóttir, forstjóri Umhverfisstofnunar

•    11.15    Möguleikar Íslands til að draga úr losun Brynhildur Davíðsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands

•    11.30    Hvernig geta neytendur dregið úr kolefnisfótspori? Brynhildur Pétursdóttir, framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna

•    11.45    Framtíðarsýn - Minnkun losunar til 2030 Sigurður Ingi Friðleifsson, framkvæmdastjóri Orkuseturs Íslands

12.00     Matarhlé

Hvert viljum við stefna? Þýðir minni losun minni lífsgæði?

•    13.00     Orkuskipti – af hverju? Jón Björn Skúlason, framkvæmdastjóri Íslenskrar nýorku

•    13.15     Loftgæði og lýðheilsa Ragnhildur Guðrún Finnbjörnsdóttir, sérfræðingur á sviði náttúru, Umhverfisstofnun

•    13.30     Frá landi til lofts og tilbaka Hafdís Hanna Ægisdóttir, forstöðumaður Landgræðsluskóla Háskóla S.þ.

•    13.45     Hvað græða fyrirtæki á að vera græn Ketill Magnússon, framkvæmdastjóri Festu

Pallborðsumræður – Hvernig getum við best dregið úr losun og eflt bindingu?

•    Auður H. Ingólfsdóttir, Háskólanum á Akureyri; Birgir Þór Harðarson, Kjarnanum; Bryndís Skúladóttir, Samtökum iðnaðarins; Guðjón Bragason, Sambandi íslenska sveitarfélaga; Hreinn Óskarsson, Skógræktinni; Rannveig Magnúsdóttir, Landvernd; Sigurður Ingi Friðleifsson, Orkusetri; Sunna Áskelsdóttir, Landgræðslu ríkisins; Þorsteinn I. Sigfússon, Nýsköpunarmiðstöð Íslands.

15.00     Þingslit og léttar veitingar




Fleiri fréttir

Sjá meira


×