Golf

Sjö skolla hringur hjá Ólafíu

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ólafía Þórunn hefur ekki náð sér á strik í Tævan.
Ólafía Þórunn hefur ekki náð sér á strik í Tævan. vísir/getty
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er í 72. sæti eftir annan hringinn á Swinging Skirts mótinu í Tævan. Mótið er hluti af LPGA-mótaröðinni í golfi.

Ólafía lék annan hringinn á fimm höggum yfir pari. Hún fékk sjö skolla og tvo fugla á hringnum.

Ólafía lék hringinn í gær á fjórum höggum yfir pari og er því samtals á níu höggum yfir pari.

Aðeins níu kylfingar eru með verra skor en Ólafía á mótinu.

Ólafía þarf þó ekki að hafa áhyggjur af því að komast ekki í gegnum niðurskurð því enginn slíkur er á mótinu í Tævan. Allir kylfingarnir fá því að klára hringina fjóra.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×