Lífið

Bjargaði kettlingi af hraðbraut

Samúel Karl Ólason skrifar
Hugrakkur maður á mótorhjóli í Bangkok í Taílandi kom blautum og hræddum kettlingi til bjargar á dögunum. Hann var á ferð á hraðbraut í borginni þegar hann sá kettlinginn á miðri hraðbrautinni og staðnæmdist út í kanti.

Þá stöðvaði maðurinn umferðina á hraðbrautinni til að komast að kettlingnum og þurfti hann jafnvel að biðja ökumann eins bíls að bakka svo hann gæti tekið köttinn upp. Myndband af björguninni hefur verið í mikilli dreifingu á netinu síðustu daga.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×