Körfubolti

Tryggvi kominn á blað í Meistaradeildinni

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Tryggvi í leik með Valencia.
Tryggvi í leik með Valencia. mynd/valencia
Landsliðsmaðurinn Tryggvi Snær Hlinason skoraði í kvöld sín fyrstu stig í Meistaradeildinni í körfubolta.

Tryggvi skoraði þá tvö stig fyrir lið sitt, Valencia, er það lagði Andolu Efes frá Tyrklandi, 78-71.

Tryggvi fékk að spila í sex mínútur í leiknum. Hann tók líka eitt frákast og varði einn bolta.

Tryggvi gekk í raðir Valencia fyrir tímabilið frá Þór á Akureyri. Mörg stórlið hafa gefið honum auga síðustu mánuði og þar af lið í NBA-deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×