Golf

Þriðji hringurinn fimm yfir pari hjá Ólafíu

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Ólafía hefur átt erfitt uppdráttar á síðustu mótum
Ólafía hefur átt erfitt uppdráttar á síðustu mótum vísir/getty
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir lék þriðja hringinn á Swinging Skirts mótinu í golfi í nótt. Hún lék hringinn á fimm höggum yfir pari og er samtals á fjórtán höggum yfir pari.

Hún situr í 74.-76. sæti á mótinu, sem er hluti af LPGA mótaröðinni.

Ólafía fékk einn fugl í dag, en fjóra skolla og einn skramba.

Efsta kona mótsins er Eun-Hee Ji frá Suður-Kóreu á tíu höggum undir pari. Lokahringur mótsins verður leikinn á morgun, eða næstu nótt að íslenskum tíma.


Tengdar fréttir

Ólafía endaði í síðasta sæti

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, atvinnukylfingur úr GR, endaði í 76.-77. sæti á Keb Hana mótinu á LPGA mótaröðinni í golfi sem kláraðist í nótt.

Sjö skolla hringur hjá Ólafíu

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er í 72. sæti eftir annan hringinn á Swinging Skirts mótinu í Tævan. Mótið er hluti af LPGA-mótaröðinni í golfi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×