Körfubolti

Domino's Körfuboltakvöld: Lið og leikmenn 3. og 4. umferðar

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Lið 3. umferðar karla.
Lið 3. umferðar karla.
Þriðja umferð Domino's deildar karla og fjórða umferð kvenna voru leiknar í vikunni. Sérfræðingarnir í Domino's Körfuboltakvöldi hafa gert upp umferðirnar og valið þá sem stóðu upp úr.

Í liði umferðarinnar hjá körlunum voru Pétur Rúnar Birgisson, Tindastól, Emil Barja, Haukum, Terrell Vinson, Njarðvík, Austin Bracey, Val og Tómas Þórður Hilmarsson, Stjörnunni. Þjálfari umferðarinnar var Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálfari Keflavíkur.

Lið 4. umferðar Domino's deildar kvenna skipa Berglind Gunnarsdóttir, Snæfelli, Rósa Björk Pétursdóttir, Haukum, Danielle Rodriguez, Stjörnunni, Helena Sverrisdóttir, Haukum og Sigrún Sjöfn Ámundadóttir, Skallagrím. Pétur Már Sigurðsson, þjálfari Stjörnunnar, var þjálfari umferðarinnar.

Leikmenn umferðanna voru Terrell Vinson og Helena Sverrisdóttir.

Helena átti frábæran leik í sigrinum á Val. Hún skoraði aðeins 11 stig, en tók 13 fráköst og gaf 16 stoðsendingar sem skilaði henni 36 framlagspunktum.

Terrell fór einnig á kostum þegar Njarðvík lagði Stjörnuna, skoraði 38 stig og tók 8 fráköst.

Lið 3. umferðar í Domino's deild karla
Lið 4. umferðar í Domino's deild kvenna
Leikmenn 3. umferðar karla og 4. umferðar kvenna



Fleiri fréttir

Sjá meira


×