Enski boltinn

Silva: Ekki sanngjörn úrslit

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Marco Silva tók við liði Watford í maí
Marco Silva tók við liði Watford í maí vísir/getty
Marco Silva segir tap sinna manna í Watford gegn Englandsmeisturum Chelsea hafa verið ósanngjarnt.

Watford komst í 2-1 forystu snemma í seinni hálfleik, en tapaði leiknum svo 4-2.

„Þessi úrslit gefa ekki rétta mynd af leiknum og hvað gerðist á vellinum,“ sagði Silva eftir leikinn.

„Við komum og stjórnuðum leiknum. Við sköpuðum okkur ekki mörg færi í fyrri hálfleik, en við réðum ferðinni.“

„Í 40 mínútur var aðeins eitt lið inni á vellinum. Ég er stoltur af því hvernig við spiluðum, en er að sjálfsögðu pirraður,“ sagði Marco Silva.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×