Fótbolti

Rúnar Alex fékk á sig fjögur mörk

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Rúnar Alex hafði í nógu að snúast í dag
Rúnar Alex hafði í nógu að snúast í dag visir/getty
Rúnar Alex Rúnarsson og félagar í Nordsjælland fóru illa að ráði sínu í dag þegar þeir heimsóttu Hobro í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta.

 

Með sigri í dag hefði Nordsjælland tyllt sér á topp deildarinnar en sú varð aldeilis ekki raunin.

 

Norðmaðurinn Pal Kirkevold kom Hobro yfir um miðbik fyrri hálfleiks.

 

Heimamenn gengu svo á lagið og gerðu út um leikinn með þremur mörkum á þrettán mínútna kafla snemma í síðari hálfleik.

 

Lokatölur 4-0 fyrir Hobro sem skaut sér upp í fjórða sæti deildarinnar með sigrinum en Rúnar Alex og félagar eru eftir sem áður í öðru sæti, tveimur stigum á eftir toppliði Midtjylland.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×