Golf

Ólafía Þórunn tveimur undir pari á lokahringnum

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Ólafía Þórunn.
Ólafía Þórunn. Vísir/Getty
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir lauk þátttöku sinni á Swinging Skirts LPGA mótinu nú rétt í þessu en mótið hefur farið fram í Taívan undanfarna daga. Mótið er hluti af LPGA mótaröðinni.

 

Ólafía lék sinn besta hring í dag en hún fór hringinn á tveimur höggum undir pari eða á samtals 70 höggum. Góður endasprettur hjá Ólafíu þar sem hún fékk þrjá fugla á síðustu fjórum holunum.

 

Hún lýkur því leik í 67.sæti mótsins á 12 höggum yfir pari en sigurvegari mótsins er hin suður-kóreska Eun-Hee Ji sem lauk keppni á 17 höggum undir pari.

 


Tengdar fréttir

Sjö skolla hringur hjá Ólafíu

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er í 72. sæti eftir annan hringinn á Swinging Skirts mótinu í Tævan. Mótið er hluti af LPGA-mótaröðinni í golfi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×