Handbolti

Vignir næstmarkahæstur í naumum sigri

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Vignir Svavarsson í leik með íslenska landsliðinu
Vignir Svavarsson í leik með íslenska landsliðinu vísir/daníel
Línumaðurinn öflugi Vignir Svavarsson stóð í ströngu í dag í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta.

 

Vignir og félagar í Holstebro fengu Skanderborg í heimsókn og úr varð hörkuleikur. Holstebro hafði frumkvæðið framan af og leiddi með fimm mörkum í leikhléi, 13-8.

 

Þeir slökuðu aðeins á í síðari hálfleik og náði Skanderborg að koma sér inn í leikinn. Engu að síður tókst Holstebro að innbyrða stigin tvö með eins marks sigri, 23-22.

 

Vignir skoraði þrjú mörk en markahæstir í liði Holstebro voru þeir Emil Sielmann og Viktor Östlund með fjögur mörk hvor.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×