Innlent

Eldur við hjúkrunarheimili og hópslagsmál

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Verkefni lögreglunnar voru fjölbreytt í nótt.
Verkefni lögreglunnar voru fjölbreytt í nótt. Vísir/Eyþór
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nógu að snúast í nótt. Þurfti hún meðal annars að bregðast við ábendingu um hópslagsmál fyrir utan bar í Kópavogi um klukkan 20 í gærkvöldi. Þegar lögreglumenn mættu á vettvang voru slagsmálin yfirstaðin og ólátabelgirnir, sem jafnt voru íslenskir sem útlenskir, vildu engin eftirmál af látunum. Voru þeir því allir látnir lausir að loknu spjalli við laganna verði.

Um svipað leyti réðst „ölvuð og æst kona,“ sem var gestkomandi í heimahúsi, á vinkonu sína - húsráðandann. Konan var handtekinn og vistuð í fangageymslu þar sem hún hefur fengið að sofa úr sér í nótt. Verður rætt við hana þegar ástand leyfir.

Skömmu eftir miðnætti var tilkynnt um 17 ára gamlan dreng sem hafði tekið „brjálæðiskast“ á heimili sínu. Hafði hann skemmt mikið af innanstokksmunum þegar lögreglumenn mættu á vettvang. Hann var þó á bak og burt og verður málið rannsakað frekar að sögn lögreglunnar.

Þá var tilkynnt um reyk frá hjúkrunarheimilinu Eir í Grafarvogi á öðrum tímanum í nótt. Eldurinn kom upp í ruslagámi sem staðsettur var við þakskýli hjúkrunarheimilisins. „Eldtungur voru farnar að teygja sig í þakskýlið en slökkviliðinu gekk vel að ráða niðurlögum eldsins“ segir í lýsingu lögreglunnar. Nokkur reykur fór inn á fyrstu hæð hjúkrunarheimilisins, aðallega í eldhús og nærliggjandi herbergi og sá slökkvilið um að reykræsta. Að sögn lögreglunnar var ekki talin þörf á að rýma hjúkrunarheimilið. Málið er nú til rannsóknar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×