Innlent

Afkvæmi sjávardýra í mestri hættu

Gunnar Reynir Valþórsson og Stefán Ó. Jónsson skrifa
Þorskstofninn er talinn geta minnkað um 25% verði ekkert að gert.
Þorskstofninn er talinn geta minnkað um 25% verði ekkert að gert.
Súrnun sjávar mun hafa mikil áhrif á lífríki sjávar ef ekki tekst að grípa í taumana og draga úr útblæstri á jörðinni. Ný rannsókn, sem unnið hefur verið að í átta ár með aðkomu 250 vísindamanna, sýnir að afkvæmi sjávardýra eru í mestri hættu.

Til að mynda gæti þetta haft gríðarleg áhrif á þorskstofninn, segja vísindamennirnir og spá því að þorskstofnar gætu minnkað niður í fjórðung af því sem nú er, eða jafnvel meira, allt niður í einn tólfta af núverandi stofnstærð.

Frá upphafi iðnbyltingarinnar hefur sýrustig sjávar farið úr pH 8,2 niður í 8,1 . Það jafngildir 26% súrnun. Loftslagsbreytingar, mengun og ofveiðar eru í rannsókninni jafnframt sagðar magna afleiðingar súrnunarinnar.

Rannsóknin var unnin af BIOACID verkefninu, sem stýrt er frá Þýskalandi en naut aðstoðar vísindamann víða um heim en skýrslan verður gerð opinber í næsta mánuði á lofstslagsráðstefnu í Bonn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×