Fótbolti

Birkir með tvær stoðsendingar í jafntefli

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Birkir Már Sævarsson í leik með Íslandi
Birkir Már Sævarsson í leik með Íslandi vísir/getty
Birkir Már Sævarsson lagði upp tvö af mörkum Hammarby í 3-3 jafntefli við Sirius í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Arnór Smárason var einnig í liði Hammarby í dag og bar hann fyrirliðabandið í leiknum.

Árni Vilhjálmsson var ónotaður varamaður hjá Jönköpings þegar liðið vann Kalmar 2-0.

Haukur Heiðar Hauksson spilaði allan leikinn í vörn AIK sem gerði 0-0 jafntefli við Malmö.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×