Körfubolti

NBA í nótt: Gríska fríkið áfram í miklu stuði | Myndbönd

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Giannis Antetokounmpo.
Giannis Antetokounmpo. Vísir/Getty
Giannis Antetokounmpo er illviðráðanlegur í NBA-deildinni í körfubolta í upphafi leiktíðar og meistarar Golden State Warriors unnu léttan sigur.

Washington Wizards er eina taplausa liðið í Austurdeildinni en bæði San Antonio Spurs og Memphis Grizzlies héldu líka áfram fullkominni byrjun sinni í nótt. Phoenix Suns snéri við blaðinu og vann sinn fyrsta leik undir stjórn nýja þjálfarans og nýliðinn Ben Simmons var með þrennu í sínum fjórða leik í NBA.

Gríska fríkið Giannis Antetokounmpo var með 32 stig og 14 fráköst þegar Milwaukee Bucks vann 103-94 sigur á Charlotte Hornets. Bucks-liðið skoraði níu síðustu stigin í leiknum. Antetokounmpo var einnig með 6 stoðsendingar, 2 varin skot og hitti úr 13 af 21 skoti sínu en Grikkinn hefur byrjað þetta tímabil af miklum krafti.





Stephen Curry skoraði 29 stig og Kevin Durant var með 25 stig þegar meistarar Golden State Warriors unnu 133-103 sigur á Dallas en Golden State menn voru fyrir leikinn búnir að tapa tveimur af fyrstu þremur leikjum sínum. Dallas hefur aftur á móti tapað fyrstu fjórum leikjum leiktíðarinnar.

Stephen Curry hitti meðal annars úr öllum 13 vítum sínum í leiknum en auk stiganna 29 var hann líka með 8 stoðsendingar og 4 stolna bolta. Durant var með 8 fráköst og 6 stoðsendingar og Draymond Green bætti við 10 stigum, 8 stoðsendingum og 7 fráköstum.  

Marc Gasol skoraði 26 stig fyrir Memphis Grizzlies sem vann sinn þriðja leik í röð þegar liðið lagði Houston 98-90 á útivelli. Þetta er í fyrsta sinn síðan 2014-15 tímabilið sem Memphis-liðið vinnur þrjá fyrstu leiki sína en þá byrjaði 6-0. James Harden var með 22 stig, 8 stoðsendingar og 5 fráköst fyrir Houston en Eric Gordon var stigahæstur hjá liðinu með 27 stig.





Nýliðinn Ben Simmons var með þrennu þegar Philadelphia 76ers vann sinn fyrsta leik á tímabilinu en Simmons var með 21 stig, 12 fráköst og 10 stoðsendingar í 97-86 sigri á Detroit Pistons. Joel Embiid var einnig með 30 stig fyrir Philadelphia-liðið sem hafði tapað þremur fyrstu leikjum sínum.





Bradley Beal skoraði 20 stig og bætti við 19 stigum og 12 stoðsendingum þegar Washington Wizards vann 109-104 útisigur á Denver Nuggets. Washington menn hafa unnið þrjá fyrstu leiki tímabilsins. Wizards-liðið hitti meðal annars úr 26 af 28 vítaskotum sínum í leiknum. Nikola Jokic skoraði mest fyrir Denver eða 29 stig.

Devin Booker skoraði 22 stig þar af tvö víti þegar 9,8 sekúndur voru eftir þegar Phoenix Suns vann 117-115 sigur á Sacramento Kings. Suns rak þjálfarann eftir þrjú töp í fyrstu þremur leikjunum en Jay Triano vann sinn fyrsta leik sem þjálfari liðsins.

LaMarcus Aldridge var atkvæðamestur í 101-97 sigri San Antionio Spurs á Toronto Raptors en Aldridge skoraði 20 stig í þriðja sigri Spurs í þremur leikjum. Dejounte Murray var síðan með 16 stig og 15 fráköst. Spurs-liðið vann þrátt fyrir að spila án þeirra Kawhi Leonard og Tony Parker. DeMar DeRozan var stigahæstur hjá Toronto með 28 stig.





Úrslitin í NBA-deildinni í nótt:

Phoenix Suns - Sacramento Kings    117-115    

Denver Nuggets - Washington Wizards    104-109    

Dallas Mavericks - Golden State Warriors    103-133    

San Antonio Spurs - Toronto Raptors    101-97    

Houston Rockets - Memphis Grizzlies    90-98    

Milwaukee Bucks - Charlotte Hornets    103-94    

Miami Heat - Atlanta Hawks    104-93    

Detroit Pistons - Philadelphia 76ers    86-97    

Los Angeles Lakers - New Orleans Pelicans    112-119



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×