Fótbolti

Sama lið hjá stelpunum okkar og í sigrinum á Þjóðverjum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mynd/KSÍ
Freyr Alexandersson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta, gerir engar breytingar á byrjunarliði sínu milli leikja.

Ísland mætir Tékklandi í Znjomo í dag en leikurinn er liður í undankeppni heimsmeistaramótsins sem fer fram í Frakklandi sumarið 2019.

Freyr teflir fram óbreyttu byrjunarlið frá leiknum gegn Þýskalandi en íslensku stelpurnar unnu þar sögulegan 3-2 sigur.

Leikurinn hefst klukkan fjögur að íslenskum tíma og verður fylgst vel með honum hér inn á Vísi.



Byrjunarlið Íslands á móti Tékklandi:

Mark: Guðbjörg Gunnarsdóttir.

Vörn: Ingibjörg Sigurðardóttir, Sif Atladóttir og Glódís Perla Viggósdóttir.

Miðja: Hallbera Guðný Gísladóttir, Sara Björk Gunnarsdóttir (fyrirliði), Dagný Brynjarsdóttir, Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir og Rakel Hönnudóttir.

Sókn: Fanndís Friðriksdóttir og Elín Metta Jensen.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×