Gagnrýni

Með krafta í kögglum og risastórt hjarta

Helga Birgisdóttir skrifar
Bækur

Áfram Sigurfljóð!

Sigrún Eldjárn

Mál og menning

Prentun: Prentmiðlun/Lettland

Kápuhönnun og umbrot: Sigrún Eldjárn



Fyrsta bókin um ofurstelpuna Sigur­fljóð hefst á því að telpan lítur í spegil og kemst að því að hún hefur misst eina framtönn. Nú, í Áfram Sigurfljóð!, er önnur tönn farin og þar með ný ævintýri að hefjast. Eftir staðgóðan hádegisverð kollsteypir Sigurfljóð sér út til krakkanna sem eru allir jafn hjálpsamir og góðir og þeir voru orðnir undir lok fyrri bókarinnar. Fullviss um að allt sé í góðu lagi heimafyrir þeytist Sigurfljóð yfir „höf og lönd, yfir fjöll og firnindi“ og á ferðalagi sínu sér hún og heyrir ýmislegt, þar á meðal stríðshrjáð land þar sem „fólk meiðir hvert annað og eyðileggur allt í kringum sig!“

Systkinin Amíra og Elías vekja athygli Sigurfljóðar þar sem þau standa grútskítug, hrædd, meidd og svöng í húsarústum. Sigurfljóð tekur þau undir arminn og flýgur með þau heim í allsnægtirnar á Íslandi. Krakkarnir í hverfinu eru tortryggnir í fyrstu en samþykkja fljótt að þau eigi nóg en ókunnu börnin ekkert og þeim þurfi að hjálpa. Amíra og Elías kunna nú líka ýmislegt og í ljós kemur að þau geta lagt sín lóð á vogarskálarnar í hinu nýja samfélagi. Sigurfljóð fer svo til baka til hins stríðshrjáða lands með systkinin og heilmiklar vistir en kemst þá að því að þar er allt enn í kaldakoli. Þá grípur hún til sinna ráða og kippir öllu í liðinn, eins og sannri ofurhetju sæmir.

Myndastílinn kannast allir Sigrúnaraðdáendur við og eins og í Sigurfljóð hjálpar öllum! eru rauðar sveigjur látnar tákna hopp, skopp og flug Sigurfljóðar og ofurhetjusjónin tákngerð með brotalínum. Ýmis smáatriði í myndagerðinni auka á lestrargleðina, svo sem epli tvö sem birtast á síðunum hér og þar, leikfangabangsinn hennar Amíru og litlu allsberu englabörnin sem svífa yfir eldfjalli sem gýs af miklum krafti.

Áhugaverðust er þó sú aukna dýpt sem sagan fær með aðstoð myndanna. Hér má sem dæmi nefna gleðina sem skín úr augum barnanna þegar þau hjálpa kvefuðum kanínum, skíthræddum skrímslum, púslandi pelabörnum og vitaskuld þeim Amíru og Elíasi. Eymd þeirra og ótti er líka svo skelfilega greinilegur í myndunum og eflaust komast ungir lesendur ekki hjá því að veita fátæklegum leikföngum þeirra athygli og bera saman við sín eigin.

Persónur bókarinnar eru týpur sem standa fyrir ákveðin gildi eða boðskap en sagan sjálf er drifin áfram af nokkuð spennandi söguþræði svo engum ætti að leiðast lesturinn. Nú er Sigurfljóð búin að koma röð og reglu á allt heima á Íslandi og úti í hinum stóra heimi. Græna flugeðlan á síðustu opnunni er ef til vill vísbending um það hvert Sigurfljóð, kraftmikla og góðhjartaða ofurstelpan, fer í næstu bók.

Niðurstaða: Einlæg og skondin fantasía sem flytur mannbætandi boðskap sem bæði stórir og smáir lesendur hafa gott af að heyra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×