Innlent

Fleiri ákærur í Æsustaðamáli ekki útilokaðar

Aðalheiður Ámundadóttir skrifar
Jón Trausti er einn þeirra sem sátu í gæsluvarðhaldi vegna málsins. Ríkissaksóknari skoðar ákvörðun um að ákæra ekki fleiri.
Jón Trausti er einn þeirra sem sátu í gæsluvarðhaldi vegna málsins. Ríkissaksóknari skoðar ákvörðun um að ákæra ekki fleiri.
Aðstandendur Arnars Jónssonar Aspar hafa kært til ríkissaksóknara þá ákvörðun héraðssaksóknara að fella niður rannsókn á hendur samferðamönnum Sveins Gests Tryggvasonar í heimsókn á Æsustaði í Mosfellsdal þann 7. júní síðastliðinn þar sem Arnar lést. Sveinn Gestur var einn ákærður fyrir alvarlega líkamsárás sem talin er hafa átt þátt í dauða Arnars en héraðssaksóknari felldi mál annarra sem fengu stöðu sakborninga í málinu niður 1. september síðastliðinn.

Meðal þeirra sem fengu stöðu sakborninga í málinu auk Sveins Gests voru Jón Trausti Lúthersson og bræðurnir Marcin Wieslaw og Rafal Marek Nabakowski.

„Það er verið að kæra þessa ákvörðun héraðssaksóknara og óska eftir því að ríkissaksóknari endurskoði hana,“ segir Þórhallur Haukur Þorvaldsson, hæstaréttar­lögmaður og réttargæslumaður ættingja Arnars.

Þórhallur Haukur Þorvaldsson hæstaréttarlögmaður
„Það hlýtur að blasa við að sá sem einn er ákærður hlýtur að byggja vörn sína meðal annars á þeim grundvelli að einhverjir aðrir hafi átt hlut að máli. Þess vegna töldum við mikilvægt að setja þessa kæru fram og láta á þetta reyna,“ segir Þórhallur aðspurður um ástæður þess að kæran er lögð fram.

Í kærunni eru færð rök fyrir því að fleiri en Sveinn Gestur hafi gerst sekir um brot sem geti flokkast undir samverknað eða hlutdeild í þeirri líkamsárás sem Sveinn Gestur hefur verið ákærður fyrir og talin er hafa leitt Arnar til dauða. Samkvæmt ákvæðum almennra hegningarlaga er það metið mönnum til refsiþyngingar hafi fleiri en einn framið refsivert brot í sameiningu. Hlutdeildarbrot getur einnig varðað sömu refsingu og aðalbrotið. Hafi hlutdeildin verið smávægileg má þó dæma vægari refsingu en lögð er við aðalbrotinu.

Kæran var lögð fram 28. september síðastliðinn og ríkissaksóknari hefur þrjá mánuði til að taka afstöðu í málinu. Niðurstaða hans getur orðið á þrjá vegu. Hann getur komist að þeirri niðurstöðu að málið hafi ekki verið rannsakað nægilega og fellt ákvörðun héraðssaksóknara úr gildi á þeim forsendum. Hann getur staðfest ákvörðun héraðssaksóknara og hann getur fellt ákvörðun héraðssaksóknara úr gildi og lagt fyrir hann að gefa út ákæru í málinu.

Sjaldgæft er að hinu síðastnefnda sé beitt en dæmin eru þó til. Í júlí síðastliðnum fól ríkissaksóknari héraðssaksóknara að gefa út ákæru í nauðgunarmáli sem héraðssaksóknari hafði áður fellt niður.


Tengdar fréttir

Ákæra gefin út á hendur Sveini Gesti í dag

Sveinn Gestur Tryggvason hefur setið í gæsluvarðhaldi undanfarnar tólf vikur. Hann er sakaður um að hafa orðið Arnari Jónssyni Aspar að bana á heimili Arnars í Mosfellsdal þann 7. júní síðastliðinn.

Jón Trausti Lúthersson farinn úr landi

Jón Trausti var látinn laus úr gæsluvarðhaldi í vikunni. Lögregla veit ekki til þess að aðrir tengdir málinu séu farnir úr landi.

Æsingsóráðið banvæna

Afar sjaldgæft er að æsingsóráðsheilkenni valdi dauða í kjölfar átaka milli tveggja óbreyttra borgara, segir réttarmeinafræðingurinn Sebastian Kunz.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×