Heilsa

Hvort er betra fyrir umhverfið að keyra bensín- eða dísilbíl?

Ragnhildur Guðrún Finnbjörnsdóttir skrifar
Ragnhildur Guðrún Finnbjörnsdóttir, umhverfis- og auðlindafræðingur og doktor í lýðheilsuvísindum.
Ragnhildur Guðrún Finnbjörnsdóttir, umhverfis- og auðlindafræðingur og doktor í lýðheilsuvísindum.
Lesendum Vísis og Fréttablaðsins gefst kostur á því að senda sérfræðingum spurningar tengdar heilsu og lífsstíl á netfangið heilsanokkar@frettabladid.is. Í hverri viku birtast svör við völdum spurningum í Fréttablaðinu og hér á Vísi.



Spurning: Hvort er betra fyrir umhverfið að keyra bensín- eða dísilbíl? 

Svar: 
Þegar stjórnvöld hvöttu almenning til að keyra frekar á dísilbílum en bensínknúnum, fyrir um áratug, er eitt þekktasta dæmi þess að nauðsynlegt er að skoða umhverfismál í víðu samhengi. Skattar voru lækkaðir á dísilolíu og dísilknúnar bifreiðar til að hvetja til minni losunar á koldíoxíði í andrúmsloftið en koldíoxíð er gróðurhúsalofttegund. Losun gróðurhúsalofttegunda veldur loftslagsbreytingum á jörðinni sem leiða til súrnunar sjávar, veðurfarsbreytinga, bráðnunar jökla, hækkunar sjávarborðs, röskunar vistkerfa ásamt fleiri neikvæðum áhrifum.

Ísland hafði sett sér markmið um losun gróðurhúsalofttegunda og lækkun skatta á dísil var gerð til að ná því markmiði. Það sem menn voru ekki undirbúnir fyrir var að svifryk og köfnunarefnisoxíð í andrúmsloftinu jókst eftir breytingarnar. Með því að minnka losun gróðurhúsalofttegunda vegna bruna bensíns varð okkur þannig ljóst að losun annarra óæskilegra efna jókst við aukinn bruna á dísilolíu en dísilbílar losa allt að hundraðfalt meira af svifryki og köfnunarefnisoxíði heldur en bensínbílar.

Svifryk og köfnunarefnisoxíð eru ekki gróðurhúsalofttegundir heldur menga þau andrúmsloftið í kringum okkur og rannsóknir hafa sýnt að þessi efni hafa heilsuspillandi áhrif á mannfólkið. Sem dæmi má nefna að aukin svifryksmengun leiðir til fleiri heimsókna og innlagna á spítala vegna hjarta-, æða- og lungnasjúkdóma auk þess sem efnið hefur verið tengt við hærri dánartíðni.

Vegna þessa þarf val hvers og eins á orkugjafa bifreiðar að byggjast á eigin sannfæringu. Viltu minnka losun gróðurhúsalofttegunda eða mengun í andrúmsloftinu? Eða viltu velja umhverfisvænni kost á borð við rafknúna bifreið eða tvinnbíl?






Fleiri fréttir

Sjá meira


×