Tónlist

Emmsjé Gauti kýs Svarta Framtíð: „Sexy strætóskýli“

Stefán Þór Hjartarson skrifar
Samtíðin er svört hjá Gauta
Samtíðin er svört hjá Gauta Mynd/Gauti
Emmsjé Gauti virðist vera búinn að gera upp hug sinn í komandi kosningum en hann tístir um ákvörðun sína og með fylgir eftirfarandi mynd af auglýsingu Svikamyllu ehf. dularfulls eignarfélags sem auglýsir víða um borg og stendur um þessar mundir fyrir kosningabaráttu til að vekja athygli á „ósýnilegum, allsráðandi hundshræjadansi fulltrúalýðræðisins“

Meira má fræðast um kosningabaráttuna hér.

Neysluvaka fer fram næstkomandi laugardagskvöld á skemmtistaðnum Húrra. Hljómsveitin Hatari sendir frá sér sína fyrstu EP plötu, Neysluvara, en ásamt Hatara koma fram Cyber, Kuldaboli og russian.girls.

Frekari upplýsinga um Neysluvöku má afla sér hér.

Facebook-síðu Svikamyllu ehf má nálgast hérna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×