Innlent

Leiðtogar stjórnmálaflokkanna taka lokaslaginn

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Sjötti og síðasti kosningaþáttur Stöðvar 2 fyrir komandi þingkosningar fer í loftið klukkan 19:10 í kvöld þegar leiðtogar flokkanna mætast í beinni útsendingu bæði á Stöð 2 og hér á Vísi.

Leiðtogar allra þeirra flokka sem eru á þingi í dag ásamt þeim flokkum sem mælst hafa með yfir fimm prósent fylgi í könnunum mæta í þáttinn:

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna

Logi Már Einarsson, formaður Samfylkingarinnar

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar

Inga Sæland, formaður Flokks fólksins

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins

Lilja Alfreðsdóttir, varaformaður Framsóknarflokksins

Jón Þór Ólafsson, þingmaður Pírata

Óttarr Proppé, formaður Bjartrar framtíðar

Fylgjast má með þættinum í spilaranum hér fyrir ofan en stjórnandi þáttarins er Heimir Már Pétursson.

Uppfært: Útsendingu er lokið en þáttinn í heild sinni má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×