Formúla 1

Sebastian Vettel treystir Arrivabene til að leiða Ferrari

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Arrivabene og Vettel
Arrivabene og Vettel Vísir/Getty
Sebastian Vettel hefur trú á að liðsstjóri Ferrari Maurizio Arrivabene sé rétti maðurinn til að leiða ítalska stórveldið.

Orðrómur hefur verið á kreiki um að Arrivabene sé líklegur til að missa starfið á næstu vikum. Sá orðrómur byggir þó sennilega helst á sögulegum staðreyndum um Ferrari liðsins. Lítil þolinmæði hefur verið í herbúðum Ferrari fyrir liðsstjórum sem ná ekki árangri strax. Hins vegar virðist sem Arrivabene muni halda starfinu aðeins lengur ef marka má Vettel.

Vettel telur að Arrivabene eigi stóran þátt í nýlegri velgengni Ferrari liðsins. Ferrari liðið hefur saxað töluvert á forskot Mercedes liðsins undanfarin ár og færst töluvert nær í ár. Áreiðanleikinn hefur hins vegar verið liðinu til ama.

Vettel hefur lýst yfir stuðningi við Arrivabene og sagt að hann vilji halda honum áfram sem liðsstjóra Ferrari.

„Andinn í liðinu var lítill. Hann er lykilmaður í að rífa hann upp, koma á opnum ferlum og breyta hlutunum sem höfðu verið í sama farinu í 20 ár,“ sagði Vettel.

„Hann er frumlegur og sýnir frumkvæði í hugsun. Hann er rétti maðurinn, góður leiðtogi og virtur af öllum innan liðsins - þá skiptir engu máli í hvaða stöðu þú ert. Ég er aðdáandi hans,“ sagði Vettel.


Tengdar fréttir

Bílskúrinn: Titillinn réðst í Texas

Lewis Hamilton vann sinn fimmta kappakstur í Texas, einungis sex Formúlu 1 keppnir hafa farið fram þar svo hann er klárlega fógetinn í Texas.

Daniil Kvyat á ekki afturkvæmt til Red Bull

Helmut Marko, ráðgjafi Red Bull liðsins segir að rússneski Formúlu 1 ökumaðurinn Daniil Kvyat eigi ekki afturkvæmt til liðs við Red Bull eða Toro Rosso.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×