Íslenski boltinn

Ein sú efnilegasta til Breiðabliks

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Karólína Lea og Þorsteinn Halldórsson, þjálfari Breiðabliks, handsala samninginn.
Karólína Lea og Þorsteinn Halldórsson, þjálfari Breiðabliks, handsala samninginn. mynd/facebook-síða breiðabliks
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir er gengin í raðir Breiðabliks frá FH.

Karólína þykir mikið efni en þrátt fyrir að vera aðeins 16 ára gömul hefur hún leikið 29 leiki fyrir FH í Pepsi-deildinni.

Karólína lék 15 leiki og skoraði tvö mörk í sumar og hjálpaði FH að setja stigamet hjá félaginu í efstu deild. FH-ingar fengu 23 stig og enduðu í 6. sæti Pepsi-deildarinnar.

Karólína hefur leikið 20 leiki fyrir U-17 ára landslið Íslands og skorað fimm mörk.

Breiðablik endaði í 2. sæti Pepsi-deildarinnar í sumar, tveimur stigum á eftir meisturum Þórs/KA.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×