Viðskipti innlent

Uppsagnirnar liður í breytingum hjá Skeljungi

Stefán Rafn Sigurbjörnsson skrifar
29 manns hefur verið sagt upp hjá Skeljungi
29 manns hefur verið sagt upp hjá Skeljungi Vísir/Gva
„Við tilkynntum í dag að vörumerkið Skeljungur mun breytast í Orkuna,“ segir Hendrik Egholm, forstjóri Skeljungs en það er liður í áætlunum Skeljungs um að einfalda rekstur eldneytisstöðva fyrirtækisins.

Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að dregið verði úr sölu- og markaðskostnaði með því að fækka vörumerkjum fyrirtækisins um eitt. Níu eldsneytisstöðvar sem hafa verið reknar undir vörumerki Skeljungs verða færðar undir vörumerki Orkunnar og bætast þar með í hóp 48 annarra Orkustöðva. Auk þeirra rekur félagið 8 stöðvar undir vörumerkinu Orkan X. Áhersla félagsins verður því að bjóða upp á ódýrt eldsneyti á 65 vel staðsettum Orkustöðvum víðsvegar um landið.

„Þetta er aðallega gert vegna breytinga á hegðunarmynstri neytanda,“ segir Hendrik. „Við teljum að við ættum að hafa okkar sterkasta vörumerki, sem er Orkan, á bestu stöðvunum og við vitum að íslenskir neytendur vilja ódýrt eldsneyti og við ætlum að koma til móts við það.“

Hendrik segir Skeljung ráðast í breytingar til að mæta breyttum þörfum neytendaMynd/Skeljungur
29 starfsmönnum Skeljungs hefur verið sagt upp hjá Skeljungi vegna fyrirhugaðra breytinga. Hann segir erfitt að fullyrða hvort fleiri verði sagt upp eða ekki en eins og er séu ekki fleiri uppsagnir á dagskrá.

„Meirihluti þeirra sem var sagt upp starfaði sem þjónustufólk á dælustöðvunum,“ segir Hendrik en vegna breytinga á Skeljungsstöðvunum í Orkustöðvar er ekki sama þörf á mannafla. „Við höfum einnig sagt upp fólki á skrifstofunni en þar er vegna þess að við þurfum að endurskipuleggja fyrirtækið með það að markmiði að vera samkeppnishæf.“

Hann á von á því að fleiri breytingar muni eiga sér stað innan fyrirtækisins í framtíðinni.

„Við munum klárlega gera frekari breytingar á Skeljungi í framtíðinni til að bæta fyrirtækið en ég hef ekki áætlað frekari uppsagnir eins og er.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×